WTF!

Sour Pain 8.375″

Mmmm, það er fátt betra en nýbakað baguette brauð. Pain þýðir einmitt brauð á frönsku, og hann Oscar Candon elskar það!

Breidd: 8,375″
Lengd: 32,01″
Hjólhaf: 14,2″
Concave: Medium+

Plöturnar eru litaðar að ofan og misjafnt hvaða litur kemur á hverri plötu… surprise!

Sour er steikt í Evrópu síðan 2017 og er einfaldlega ferskasta evrópska merkið í dag!

Vöruflokkur: Merki:

Original price was: 11.900 kr..Current price is: 8.000 kr..

Varan er til á lager

Meira um vöruna

Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂

Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!

Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.

Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.