WTF!

Sour bakpoki

Þarftu stundum að taka dót með þér á ferðina? Leitaðu ekki lengra! Þessi bakpoki er kjörinn til að geyma allskonar dót og léttir manni heldur betur lífið. Skelltu þér á einn strax! 🙂

ATH! Þetta er EKKI lítill, þunnur og lélegur bak/sundpoki á uppsprengdu verði eins og finnst víða, heldur er um að ræða veglegan poka úr þykku og góðu efni með þykkum og sterkum böndum. Auk þess er renndur innanvasi á hliðinni á pokanum sem er u.þ.b. hálfur pokinn að stærð. Þá er SOUR lógóið saumað í pokann en ekki límt/áprentað, þannig að það er ekki að fara neitt.

Stærð: 39 x 47 cm. (B x H)

Sour er steikt í Evrópu og er einfaldlega ferskasta merkið í dag!

Vöruflokkar: , Merki:

Original price was: 3.490 kr..Current price is: 1.990 kr..

Varan er til á lager

Meira um vöruna

Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂

Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!

Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.

Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.