Sour Solution hettupeysa (grá)
Flott hettupeysa frá Sour Solution úr „Sour Army“ línunni þeirra. Það er eina línan sem heldur sér alltaf óbreytt á milli ára sökum vinsælda, enda stílhrein og tímalaus hönnun.
Peysan er úr 80% bómull og 20% polyester og er framleidd í Evrópu.
SOUR merkið er saumað í peysuna þannig að það er ekki að fara neitt!
Original price was: 9.990 kr..4.990 kr.Current price is: 4.990 kr..
Meira um vöruna
Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂
Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!
Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.
Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.
Frekari leiðbeiningar
Stærð | Small, Medium, Large, X-Large |
---|