TSG Nipper Mini 48-51 cm.

TSG Nipper Mini hjálmur fyrir börn með höfuðstærð 48-51 cm.

Hjálmurinn er svartmattur og flottur með lógói TSG að framan og aftan. Það er endurskin í allri ólinni og auk þess fylgja 2 flottir endurskinslímmiðar með til að líma á hjálminn.

Best er að mæla ummál höfuðs til að sjá hvort stærðin er rétt. Hjálminum fylgja tvö mismunandi innlegg svo notandinn geti aðlagað hann sem best að sér eftir höfuðstærð.

Fyrir stærri hjálma er best að skoða „Nipper Maxi“ sem er 52-54 cm. eða „Evolution“ sem kemur í nokkrum stærri stærðum.

CE EN 1078 vottaður sem bæði bretta- og hjólahjálmur í Evrópu.

Vöruflokkur: Merki:

7.900 kr.

Varan er til á lager

Meira um vöruna

TSG er svissneskt fyrirtæki sem framleiðir hjálma og hlífðarbúnað fyrir allar helstu jaðaríþróttir.

TSG fæddist árið 1988 og frumsýndi stuttu síðar fyrstu vöruna sína sem voru öryggishlífar fyrir hjólabrettafólk. Stuttu síðar kom svo fyrsti hjólabrettahjálmurinn og með tímanum færði fyrirtækið út kvíarnar og fór að framleiða vörulínur fyrir allskonar jaðaríþróttir og hjólreiðar.

Núna rúmum 30 árum síðar eru þau enn á fullu og ennþá stjórnað af jaðaríþróttafólki – fólki sem þekkir hvað þarf og notar vörurnar sjálft á hverjum degi.

Sviss og öryggi – hljómar vel í okkar eyru!