Sour flugnaspaði
Ertu komin/n með leið á vinunum eða vinnufélögunum? Notaðu þennan flugnaspaða til að slá liðið þegar það er með leiðindi og vesen!
Virkar líka á flugur.
Sour er steikt í Evrópu og er einfaldlega ferskasta merkið í dag!
490 kr.
Vara uppseld
Meira um vöruna
Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂
Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!
Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.
Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.