Mini-Logo fóðringar (hard)
Fóðringar frá Mini-Logo fyrir skeitara sem eru í þyngri kantinum eða þau sem vilja hafa öxlana sína frekar stífa.
Stífar fóðringar (100A) sem passa í alla hefðbundna öxla. Koma sem sett fyrir 2 öxla.
1.090 kr.
Varan er til á lager
Meira um vöruna
Mini-Logo er hluti af SkateOne samstæðunni sem á og framleiðir m.a. Powell-Peralta og öll Bones merkin. Mini-Logo er hagkvæmi armur samsteypunnar og býður upp á vörur á lægra verði. Það þýðir þó ekki að eitthvað sé gefið eftir í gæðum því vörurnar eru framleiddar eftir ströngum gæðastöðlum og sem dæmi þá eru Mini-Logo brettaplöturnar lagaðar eftir sömu mótum og Powell-Peralta plöturnar hafa verið mótaðar eftir til fjölda ára. Mini-Logo öxlarnir eru þar að auki einu öxlarnir sem SkateOne framleiðir og það segir allt um gæði þeirra.
Mini-Logo eru frábærar vörur á geggjuðu verði og það verður enginn svikinn af þeim!