OBT stuðningshlíf hné

Erfiður dagur á brettinu, eða á hjólinu, í golfinu eða á krossaranum?

Frábær stuðningshlíf frá Old Bones Therapy sem gefur þéttan stuðning fyrir hné. Sílikonpúði eru auk þess saumaður innan í hlífarnar og gefur aukinn stuðning í kringum hnéskelina.

Ef þessar hlífar eru notaðar undir venjulegar öryggishlífar fyrir hné þá hjálpa þær til við að halda öryggishlífinni á sínum stað. Win-win dæmi!

Það er gott að miða við neðangreindar mælingar til að sjá hvaða stærð hentar.

Mælt utan um læri 10 cm. ofan við hné (sjá skýringarmynd):
– S 30-36 cm.
– M 36-41 cm.
– L 41-46 cm.
– XL 46 cm. og meira

Vöruflokkur: Merki:

4.490 kr.

Meira um vöruna

Old Bones Therapy var stofnað af og er í eigu Brandon Fields sem er skeitari, verkfræðingur og frumkvöðull. Hann var kominn með leið á að finna hvergi almennilegar stuðningsvörur eftir áratuga hjólabrettaiðkun og ákvað því að taka málin í sínar eigin hendur. Í dag býður Old Bones upp á breiða línu af stuðningvörum og hlífum, margar hverjar með möguleika á kælingu með kælipokum.

Við erum ekki 14 ára endalaust og þörfin fyrir að styðja og kæla verður sífellt meiri svo við getum haldið áfram að gera okkar. Vörurnar henta öllum þeim sem hreyfa sig og neita að láta smá eymsli stoppa sig – þess vegna eru einkunnarorð Old Bones „Keep Ruling!“

Frekari leiðbeiningar

Stærð

Small, Medium, Large, X-Large