Santa Cruz byrjendabretti 7.75″ (notað)

Frábært byrjendabretti frá Santa Cruz. Í grunninn er þetta Santa Cruz bretti með Bullet öxlum en búið er að bæta við nokkrum hlutum til að gera það ennþá betra:
– Mýkri fóðringar (bushings) í öxlum svo það henti krökkum ennþá betur
– Haze Wheels dekk, stærð 52 mm. og stífleiki 99A
– Bones hágæða legur

Brettið var notað af einum 8 ára í eitt sumar. Það er í toppstandi og á nóg eftir.

Þetta bretti getur hentað fyrir alla frá ca. 5-12 ára. Hægt er að fræðast nánar um samsett bretti og hvaða stærðum við mælum með í fræðslunni hjá okkur.

Vöruflokkur: Merki: ,

5.000 kr.

Varan er til á lager

Meira um vöruna

Santa Cruz er fornfrægt hjólabrettamerki, enda elsta starfandi hjólabrettamerkið í heiminum!