WTF!

Sour Solution bolur (hvítur)

Flottur bolur frá Sour Solution úr „Sour Army“ línunni þeirra. Það er eina línan sem heldur sér alltaf óbreytt á milli ára sökum vinsælda, enda stílhrein og tímalaus hönnun.

Hvítur bolur með áprentuðu svörtu SOUR lógói að framan.

Vöruflokkur: Merki:

2.490 kr.

Meira um vöruna

Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂

Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!

Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.

Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.

Frekari leiðbeiningar

Stærð

Small, Medium, Large, X-Large