Sour Box Logo VHS 8.00″
Gæða hjólabrettaplata frá Sour Solution – Box Logo VHS. Ekki gleyma að skila spólunni!
Breidd: 8,00″
Lengd: 31,85″
Hjólhaf: 14,2″
Að ofan er platan lituð og er misjafnt hvaða litur kemur – surprise!
Sour er steikt í Evrópu og er einfaldlega ferskasta evrópska merkið í dag!
9.490 kr.
Varan er til á lager
Meira um vöruna
Barcelona er hjólabrettahöfuðborg Evrópu. Sour Solution á einmitt rætur sínar að rekja þangað þrátt fyrir að vera í eigu og rekið af Skandinövum (þú veist, fólki frá Skandinavíu). Þeir stofnuðu Sour eftir að hafa verið hjá Sweet Skateboards um árabil en hætt þar eftir ýmsar áherslu- og stjórnendabreytingar sem þeim hugnaðist ekki. Sniðugt nafn líka, súrt og sætt skilurðu 🙂
Allavega, Sour er einmitt með flotta búð í Barcelona svo það er um að gera að heimsækja þau þegar þú ert á ferðinni. Heimilisfangið er Calle Teodor Bonaplata 3, 08004, Poble Sec, Barcelona. Skilið kveðju frá Regular!
Sour framleiðir fyrst og fremst brettaplötur, en líka fatnað og ýmsa auka- og fylgihluti. Allt framleitt í Evrópu.
Við erum stolt af því að vera samstarfsaðili Sour.